|
|
23.09.2006 21:43:55 / annabegga
Þá er maður fluttur og hefur það asskoti gott! Margir búnir að koma
og skoða og alltaf sömu góðu viðbrögðin  Maður gæti ekki haft það
betra: ný íbúð, 2 bílar (for the time being), kyrrð og spekt á
næturnar, nánasta umhverfi svipar agalegum Akureyraranda þar sem
húsin eru eins og í gamla góða Byggðaveginum og umferðin ekki
hraðari en 50...
aaaaahhhhhh.... Maður á þetta inni eftir fyrri hús og hýbýli.
Annars er það bara vinnan og óhætt að segja að ég þurfi að búa til
einhvers konar fjölmenningarstefnu innan deildarinnar minnar þar
sem ansi mörg börn eru af erlendum uppruna! Slíkt hefur ekki komið
fyrir í áraraðir innan leikskólans, og sérstakt að þetta séu allt
börn 3-4 ára og koma öll á deildina mína. En svona er samfélagið í
dag og mun verða enn meir í framtíðinni. Endalaust krúttleg þessi
erlendu börn sem bjarga sér með líkamstjáningunni einni, ótrúlega
dugleg og fylla mig stolti  Deildin mín er sko best, heh.
Svo er vert að geta þess að Forma dagurinn var í dag, kíkti í
Borgarleikhúsið og sé ekki eftir því. Virkilega gott framtak og
nauðsynlegt, til hamingju með það Formastelpur
Fleira er ekki í fréttum að sinni, afdalabúinn hefur talað.
Hviss bamm búmm!
»
11.08.2006 22:41:27 / annabegga
Komin aftur suður eftir 2ggja vikna stopp í heimahögunum.
Aldeilis fínt að slaka á í sveitinni og gera mest lítið annað en
fara í fjós og baka gúmmelaði.
Afrekaði eftirfarandi meðan á dvöl minni stóð: Fór á
Sigurrósartónleika á þarnæsta bæ, gerðist fjósakona í 4 daga meðan
settið fór í frí, snéri heyi á nokkrum túnum, var
siðgæðisvörður meðan tveir tjaldbúar gerðu sér gott í
sveitinni og drukku mikinn mjöð ásamt bróður mínum og spússu
hans, fór á hestbak hjá systur minni neðar í dalnum og fékk
langþráðar harrsperrur, rakaði heimreiðina með
hrífu, fór í væna nettóferð fyrir mömmu í kaupstaðinn, keypti
mér diskinn með Jeff who?, bakaði ýmislegt
bakkelsi við góð viðbrögð heimilisfólks, djammaði tvö kvöld á
kaffi Akureyri um versló og er ennþá eftir mig, fór í Brynju og
borðaði góðan forða af Greifapizzu, þyngdist um hellings kíló, bauð
tengdó í kaffi í sveitina, og svaf mikið og vel.
Nú tekur við vinnutörn heldur betur, aðlaganir haustsins að
hrannast inn og ég þarf að gerast fjölmenningarleg þar sem vissir
foreldrar tala litla sem enga íslensku eða ensku, glúbb...
Svo eru það geggjuðustu fréttirnar: flutningar í nýju
íbúðina í næstu viku og næstu helgi!!!! ííííssssk maður
er orðinn spenntur! Búin að pakka niður alveg 3svar í
huganum og ætlaði að reyna að láta verkin tala í kvöld en kem mér
einhvern veginn ekki í það ennþá....iss en það gerir
lítið til þar sem ég hef áralanga reynslu af niðurpökkun og
flutningum. Not my cup of tea.
Jæja best að fara að pakka!
»
24.07.2006 12:57:50 / annabegga
Loksins:
Ég er í sveitinni ligga ligga láa!!
Verð í 2 vikur ligga ligga láa!
Planið er að öðlast enduræringu á líkama á sál ligga ligga
láa!!
Og læra fullt í ritgerð ligga ligga láa!!
Farvel!
»
10.06.2006 22:07:49 / annabegga
Já, sumir dagar eru öðruvísi en aðrir!
-ætlaði að vakna snemma, -ætlaði að læra mikið í allan dag,
-ætlaði að taka
til, -ætlaði
í sturtu, -ætlaði að eiga inni að fara í innflutningsteiti í
kvöld.
-ætlaði ekki að horfa á sjónvarpið, -ætlaði ekki að sofa,
-ætlaði ekki að kaupa mér eyrnalokka, -ætlaði ekki í bíltúr,
-ætlaði ekki að rölta laugarveginn, -ætlaði ekki að
blogga.
Já, sumir dagar eru hreinlega ekki ætlaðir fyrir kraftaverk.
Hver fann upp á svona dögum? Kannast ábyggilega allir
við þá (nema fullkomna leiðinlega fólkið). Kannski þetta sé
leið okkar mannfólksins til að cope-a hið daglega amstur í lífinu,
ef ekki væru svona dagar þá myndu allir verða geðsjúkir og hlaupa
berrassaðir um stræti og torg og tún. Ég tel þetta gefna
ástæðu.
Mottó og lærlingur dagsins: Gerðu það besta úr hlutunum,
allir hlutir eiga sér ástæðu, þú getur ekki stjórnað örlögunum,
horfðu á björtu hliðarnar.
Later!
»
04.06.2006 22:51:45 / annabegga
Jeminn, að maður eigi að sitja inni við ritgerðaskrif allan
þennan mánuð. Er ekki alveg að ná þessu ennþá, en kikkar sjálfsagt
inn þegar helgin er afstaðin. Eins gott að maður nýti tímann vel og
nái að hripa einhverju niður á blað! Allavega er ég búin að skipta
um efni og er alveg ágætlega spennt fyrir því nýja.
Hef ekki ennþá klófest loftnetið af bílnum mínum, sú leit á
eftir að reynast mér langræk.
Fór á alveg hreint magnaða tónleika í gær! Reykjavík tropic
festival kallast þeir og standa yfir í 3 daga fyrir þá sem ekki
vita... Tókum þvílíka skyndiákvörðun í gærkvöldi og skelltum okkur
þrátt fyrir háar fjárhæðir. Sjáum ekki mikið eftir þessu, hoppa og
syngja á grasinu í risastóru tjaldi, verða fyrir
smá bjórskvettum og pissa í kamar. Ekta útilegustemning
og fullt af góðu fólki sem maður hitti Svo er ekki af verri
endanum að geta sagt að maður hafi séð Supergrass live! Magnað. Er
ekki frá því að hafa fengið dágóða tónleikabakteríu í mig, allavega
verður tónleikaferð að fylgja næstu utanlandsferð hjá mér-ví!
Var svo úti að borða áðan og skemmtum við okkur konunglega við
að horfa á flóru af allavega fólki á förnum vegi...það sem stendur
upp úr er kona með 2 hunda í bandi , einn risastóran og annan
pínulítinn, og páfagauk á öxlinni að labba upp Laugarveginn.
Hressandi reykvísk menning.
Plúsa helgarinnar fá Supergrass, humarpizza og grillið í
Gravarvogi.
Pís
»
20.05.2006 21:55:27 / annabegga
Söknuðuð þín mín??! (úr Aladín)
Kominn tími á skrif ef til vill....fínt að dunda við það meðan
maður situr yfir Evróvision...
-talandi um júró þá fær Sylvía prik frá mér fyrir að gefa skít í
þessa úr sér gengnu keppni og standa undir öllu mótlætinu.
Snilld. Og mér sýnist finnar vera að taka þetta í kvöld. Ennþá
meiri snilld!
-reykvískur húsnæðismarkaður er ennþá til skammar, maður er á
eins konar bið núna uns verð muni lækka. Annars ætla ég bara að
kaupa bílskúrinn sem ég bý og selja hann dýrum dómum í
brotajárn þegar maður finnur eitthvað.
-í sumar bíða mín ritgerðarskrif, blessuð BA ritgerðin á loks að
fæðast. Agalegt að eyða sumrinu í þetta en ekkert annað í
boði! Búin að fá námsleyfi allan júní og allt hvað eina,
þannig eins gott maður nýti það, huhumm(svindla bara um miðjan
fyrir 5 ára stúdentsafmælið sem verður geggjað! Í bjartsýniskasti
sótti ég svo um framhaldsnám í námsráðgjöf, fékk auðvitað ekki inn
þar sem ég hef ekki lokið BA prófi. Þá ganga sem sagt allir aðrir
fyrir, sama hvaða meðaleinkunn maður hefur..algert prump!
-leikskólinn virðist því verða þess heiðurs aðnjótandi að hafa
mig enn einn veturinn, heppinn hann.
-sumarhugurinn læðist að manni þessa dagana. Fyrir utan að
skrifa ritgerð þá ætla ég að reyna að eiga líf. Ég skal komast í
grillmat, sólbað, sveitina og svo framvegis, jei!
-Svo verð ég ofvirk hér á síðunni í júní þegar allir
aðrir eru komnir í sumarfrí og hættir að blogga, en ég mun halda
uppi stuðinu!
-Hafið þið annars heyrt um fólk sem stelur loftnetum af bílum?
látið mig vita...
»
24.02.2006 23:09:08 / annabegga
Hvað er málið með seinustu daga mánaðarins? Alltaf eru þeir jafn
erfiðir vegna peningaleysis. Maður neyðist yfirleitt til að hanga
heima borðandi rykmaura og horfandi á Guiding.
En í þessum mánuði var mér bjargað fyrir horn. Foreldrar mínir
gerðust svo elskulegir að senda mér afmælispening til að kaupa mér
eitthvað fallegt, þannig nú get ég bæði farið út úr húsi og keypt
mér eitthvað fallegt! Takk milljón sinnum til stórbændanna
innan dala norðan heiða...
Annars virðast ekki allir vera í sömu peningakreppu og ég þegar
kemur að mánaðarmótum. Labbaði niður í bæ í dag um 6 leytið og
gerði ekki annað en að mæta uppábúnu fólki sem var greinilega á
leið út að borða í tilefni food and fun hátíðarinnar sem nú stendur
yfir í borginni. Þannig maður spyr sig hvort þessu leiðindatímabili
mánaðarins ljúki þegar maður verður stærri...hlýtur að vera. Segjum
það bara. Svo er víst líka vetrarhátíð þessa dagana, ekki
það að ég sé nógu artí til að taka þátt í henni...
Skoða íbúðir á fullu þessa dagana. Ekkert að frétta svo sem. Hef
því ekkert meira um það að segja. Reykvískur húsnæðismarkaður er
til skammar.
»
18.02.2006 18:56:57 / annabegga
Aldeilis FRÁBÆRT afmæli afstaðið fyrir um viku. Var alveg búin
að gleyma hvað það er gaman að halda almennilega upp á afmælið
sitt. Nú ætla ég að eiga mörg afmæli framvegis og halda upp á þau
öll! 30´s here I come! Takk allir sem komu og voru svona óendanlega
skemmtilegir og góðir við mig Che Guevara þakkar líka mikinn
velhug, rúmið mitt þakkar englinum viðveruna þessa merkilegu
nótt og Sylvía Nótt og Britney senda kveðju!
Annars er yfirvofandi Evróvision keppni á allra vörum um þessar
mundir, spennan magnast með hverjum klukkutímanum-eða ekki! Hlakka
samt mjög til að sjá hana Sylvíu mína taka þetta í nefið Ég mun
sitja yfir snakkáti og bjór með góðu fólki eins og sönnum íslending
sæmir þegar þessa keppni ber að garði.
Megiði eiga gott kvöld
»
09.02.2006 18:46:23 / annabegga
Já nú stendur maður svo sannalega á krossgötum í lífinu
(allavega samkvæmt móður minni..). 25 ára aldurinn nálgast óðfluga
og ég get ekkert að gert. Ég hef gjarnan lifað í þeirri trú að ég
hafi stoppað við 23 ára aldurinn og þyrfti því engar áhyggjur að
hafa, en nú berast raddir hvaðanæva um að nú nálgist
stórafmæli.
Ég hef því ákveðið að ráðast að þessu aldursári með tilþrifum og
gera eitthvað merkilegt í tilefni dagsins, hvorki meira né minna!
Með í för hef ég allra besta vinkonukjarnann minn (fyrir utan
eina) og sumar leggja meira að segja land undir fót til að
vera með...Stefnan er því tekin á vit ævintýranna, enda síðasti
séns þar sem eftir að 25 árum er náð tekur alvaran við. Þessu
má kannski líkja við gæsun fyrir brúðkaup, síðasti séns til að
flippa og lifa í eintómu kæruleysi.
Hvursu alvarlegt árið á eftir að verða mun koma í ljós, en þarna
einhvers staðar eiga víst að leynast full menntun, starfsframi,
barneignir, húsnæðiskaup, 3 bílar, sumarhús og svo
framvegis...
Mikið dýrka ég íslenskar samfélagskröfur (og mömmu
mína)...
»
31.12.2005 18:22:43 / annabegga
Já það má með sanni segja að ég
kveðji þetta ár með tilþrifum! Haldiði ekki að mín hafi vaknað í
dag með þvílíka ógeðistilfinningu (nei ég er ekki ólétt) og
magaverki. Ég staulaðist á fætur á endanum, lauk mér af inn á
baði um tvisvar sinnum og nartaði svo í epli og drakk goslaust
kók fram í eftirmiðdaginn. Og viti menn, ég er bara öll að koma
til! Enda er ekkert í boði að vera veikur á gamlársdag, ó nei
hósey!
Hef reyndar þá kenningu að ég hafi
fengið sólstind eftir ljósatímann í gær. Var geðveikt dösuð og með
hausverk í allt gærkvöld eftir tímann, og síðan ógleði í
morgun...
En núna er ég allavega í góðu
yfirlæti hjá tengdó þar sem mín bíður 3ja rétta máltíð, kampavín,
konfekt og allt tilheyrandi! Alveg ómótstæðilega glæsilegt hjá
frúnni henni tengdamömmu Bestu fyrstu áramót í Reykjavík sem hægt er
að eiga hugsa ég..
Þar sem árið er nú senn liðið er ekki
úr vegi að rifja upp það markverðasta sem fram hefur farið hjá
manni á árinu:
-ég varð 24 ára í febrúar mér til
mikillar mæðu
-ég flutti af Garðastræti á
Lindargötu og bý þar í þakhýsi miklu
-ég er komin á vip samning hjá kaffi
22
-ég fór í tæpan mánuð norður í
sumarfrí sem var æði! Og þar var haldið ættarmót sem gerist mjög
sjaldan í minni fjölskyldu...
-ég gerðist deildastjóri á
leikskólanum í haust og vegnar sérlega vel við það
-ég er búin að leita að íbúð og bíl í
ansi langan tíma án árangurs
-ég upplifði það að litli bróðir minn
trúlofaði sig og margar vinkvenna minna eignuðust
börn eða giftu sig
-ég verð í reykjavík um áramótin sem
er rosalegt first time hjá mér, bara gaman
Ásamt þessum hlutum hefur maður
auðvitað lært margt og orðið reynsunni ríkari í skóla lífsins.
Maður ætti því að ganga teinréttur inn í næsta ár með reynsuna á
bakinu og ný tækifæri handan við hornið...
Ég nota þá bara tækifærið og óska
ykkur öllum gleðilegs árs með þökk fyrir liðið og segi ykkur öllum
að ganga hægt um gleiðinnar dyr á nýju ári
Skál!
»
04.12.2005 16:34:01 / annabegga
Commenta maður/kona.. og..:
1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um
þig
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggalinginn
þinn!
Hehehehe.... 
»
27.11.2005 00:05:57 / annabegga
Hvað er betra en að sitja heima á laugardagskveldi um miðnætti
fyrir framan tölvuna og blogga eilítið nokk..? Mér finnst þetta
alger lúxus! Eða kannski meira svona það er ekkert í sjónvarpinu og
mér drulluleiðist...
En allavega, hafið þið einhvern tíma dottið ofan í svona brjálað
hugsunarástand, þar sem heilinn fer á fullt og maður hugsar um allt
milli himins og jarðar? Ég fæ gjarnan svona köst á
laugardagsmorgnum (eða þegar ég vakna, sem er undir hádegi) og þá
ligg ég kannski í meira en klukkutíma og hugsa og hugsa. Þetta er
reyndar ýkt gaman
meira síðar....
»
18.11.2005 20:46:14 / annabegga
Sælir landsmenn góðir!
Þá loksins, eftir mikið framkvæmdaleysi og ódug, tók ég mig til
og fékk mér símanúmer í holuna mína og þar af leiðandi netið. ADSL
tengingu í þokkabót, bara allur pakkinn, þýðir ekkert annað þegar
maður er að þessu á annað borð. Já maður er sem sagt orðinn tengdur
aftur eftir langt hlé, og farinn að downloada tónlist eins og
vitleysingur og hanga á msn og bloggi eins og sönn
gelgja...víbbdídei!
Fyrst maður er ekki enn búinn að finna sér íbúð til
kaupa og er bíllaus í þokkaót, þá er netið minn allra besti vinur
þessa dagana Hljómar kannski sorglega, en mér er alveg sama
Maður er auðvitað alltaf af leita en málið er að 90% af bílum og
íbúðum (á viðráðanlegu verði) er drasl! Þannig ég ætla bara að vera
101 rotta eitthvað áfram...sem er bara fínt. Maður getur labbað í
búðir og keypt sér allt frá second hand sólgleraugum og che guevara
plakötum til nýjustu slúðurblaða og hnakkagels.
Maður getur líka farið á djammið þegar manni sýnist og þá
valið rock í converse skóm eða rassadillur á
pinnahælum. Svo ég tali nú ekki um úrval matsölustaða og
kaffihúsa, alveg tilvalið fyrir okkur rotturnar. Já, í
miðbænum er sko allt til alls. Fyndið að hugsa til þess
núna að ég sé fædd og uppalin í afdal einum norðan
heiða...
En allavega, annars er maður bara alltaf í vinnunni, og er
aldrei veikur! Djöfull er maður hraustur eitthvað, allir veikir í
kringum mann (bæði börn og starfsfólk) en aldrei smitast maður. Ég
vil þakka hreina fjallaloftinu að norðan góðan stuðning og mikla
uppbyggingu ónæmiskerfis. Takk fyrir takk. Annars eru þessi
blessuðu börn alltaf jafn indæl (most of the time) og farin að líta
á mig sem einhvern drottnara deildarinnar held ég. Kannski því ég
er alltaf að hamra á reglunum við þau...en maður knúsar þau inn á
milli, þá er maður golden
En allavega, ég skrifa ekki meir núna. Þið þarna sem voruð að
ýta og heimta blogg-eat this!!!! Túrillú!
»
13.08.2005 19:25:52 / annabegga
já ég vona svo sannarlega að ég komist aftur á malbikið með 4
hjól undir mér og stýri í höndunum, því margt fhefur nú gerst frá
því ég var hér síðast! Eins og gefa kynnir þá gaf bíllinn hans
kallsins upp öndina fyrir ekki svo löngu þannig nú er maður á
höttunum eftir góðu eintaki af bíl...helst toyotu corollu ætlum
ekki aftur í hjondæ pakkann. hann var nú samt ágætur greyið, það
var ekkert honum að kenna að fyrrum eigandi skipti aldrei um
tímareim í honum...
Og annað á dagskránni eru íbúðarkaup takk fyrir takk! Erum í óða
önn að skoða þessa dagana því við erum komið með leið á að búa í
bílskúr upp á þaki með fyllibyttum fyrir nágranna....no judgement!
núna er ég til dæmis búin að sitja í odda í tæpa 4 tíma
að vafra á netinu eftir íbúð og bílum, geri aðrir betur
Hei já, ég hóf síðan störf mín sem deildastjóri á leikskólanum
mínum núna eftir sumarfrí og gengur svona líka bara vel. Kominn
tími á að maður fái eitthvað í budduna fyrir þetta djobb mín
markmið verða: engir nammidagar, nóg af róandi pillum útí pelana og
rauðvín með matnum! Nei ég er nú bara að gantast núna, því þessi
börn eru algerir snillingar
og svo er aldrei að vita hvort maður geti fengið internet
tengingu í nýju villunni sem maður flytur í, og þá kannski nenni ég
að blogga eitthvað, annars finnst mér bloggið vera að renna sitt
skeið hjá mörgum....
en anyways, túrillú!
»
04.05.2005 22:44:38 / annabegga
ví! rosalega er gaman að fá svona mörg comment, ég er alveg bara
orðin æst í að skrifa meira!
Ég er að pæla að flytja til útlanda, finna eitthvað fótboltalið
handa kallinum mínum og stinga af! Finn þessa gífurlegu orku þessa
dagana sem heitir: I wanna do something great and
crazy with my life!
Þarf nokkuð að klára lokaritgerð áður en maður fer til útlanda,
hm.....ansk!
Allar góðar og sniðugar hugmyndir þessu tengt eru vel
þegnar
blæ
»
Síður: 1 2 3 4
|
|